17janúar

2008

Ég er í afneitun....ég algjörlega NEITA að viðurkenna að þessi síða sé að deyja!!! Svo koma stelpur vera duglegar að blogga og kommenta hérna inn á. Ég veit þið getið þetta - ég hef trú á ykkur!!! Ok nú lítur þetta út fyrir að ég sé sú sorlegasta og hafi ekkert betra að gera en að blogga og skoða önnur blogg - hey hvað á ég annað að gera meðan krúttan mín sefur??? nei oki ég geri margt annað....en þetta er samt partur af því:P

En oki allavega...fyrir ykkur hin sem lesa þetta (ef það eru nú einhverjir) þá held ég að það sé bara allt gott að frétta af okkur píunum. Fékk staðfestingu á því í dag að Snædís er enn á lífi...já var farin að óttast að ekki væri allt með feldu þar sem kjellan var ekki búin að vera á msn eða blogga í óeðlilega langan tíma. En það er góð og gild ástæða fyrir því...daman komst á útsölur í Frakklandi!!! Að sjálfsögðu tökum við því sem löglegri afsökun;0) Ég hef ekkert heyrt frá Hrefnu síðan á jóladag - svo ég hef því miður bara ekki hugmynd um hvað er að gerast hjá henni. Og ef þú lest þetta hon þá endielga bloggaðu á síðuna þína og leyfðu okkur að fylgjast með þér;0) Eva Dís er að drukkna í prófalestri...já ótrúlegt en satt þá náði ég bara loksins sambandi við konuna. En já hún er sem sagt að læra fyrir próf þessa dagana - hefur sko alla mína samúð. Hlakka mikið til að hún verði búin svo það geti orðið smá pjattpíkuhittingur!!! Já hitti svo LOKSINS Hildi á mánudaginn....pæjan búin að vera veik síðan um jólin svo ég hef ekkert hitt hana síðan hún kom heim. Gjellan er að leita sér að vinnu þessa dagana svo ef þið vitið um eitthvað þá endilega látið hana vita. Hef því miður ekkert heyrt af Írisi heldur í langan tíma, held að hún sé bara að vinna á leikskólanum og svona!!! Hvað mig varðar þá er ég bara einbeita mér að því að vera mamma og fíla það í botn. Dúllast með snúlluna mína alla daga, löbbum hingað og þangað um bæinn og liggjum heima í leti og leikum okkur;0)

Svo held ég að það sé planaður pjattpíkukhittingur á miðvikudaginn - og ætlum við skvízurnar að skella okkur á Greifann;0) Er farin að hlakka rosa til. Svo stelpur mínar ef þið hafið ekkert að gera og ykkur leiðist þá megiði endilega kíkja á okkur mæðgurnar. Við höfum voða lítið að gera á daginn svo við erum alltaf til í smá félagsskap.

Svo var ég að spá í að gera svona annál yfir árið 2007 inn á þessa síðu eins og ég gerði á minni. En ákvað að sleppa því þar sem ég mun líklega taka árið fyrir (ásamt öllum hinum)  í minningabókinni okkar!!! já vel og minnst stelpur þið megið endilega fara drífa í því að svara þessu sem ég sendi ykkur. Væri fínt að fá þetta fyrir mánaðarmót svo ég hafi nú góðan tíma í að setja þetta saman!!! Svo koma stelpur - drífa í þessu!!!

Annars læt ég þetta gott heita í bili og skora á ykkur stelpur mínar að vera duglegar og aktívar á þessari síðu;0)

Adios
Hulda - sem saknar allra svvoooo mikið:*:*:*

17. janúar 2008 klukkan 17:57
...
7 athugasemdir
09desember

hćhó

úff tími varla að blogga yfir síðustu færslu...en jæja það verður víst að reyna að halda lífi í þessu bloggi!!!

Svona fyrir ykkur meðlimi pjattpíkanna þá hef ég ákveðið að henda mér í að gera svona mynningabók handa okkur....mun dunda mér við það næstu vikur og jafnvel mánuði. Er farin að safna að mér efni og ætla svo að fara í gegnum myndirnar og velja úr og svona. En ég hef einnig útbúið lista sem við eigum allar að fylla út og munu þessar upplýsingar koma fram í bókinni (þið fáið hann sendann í maili á næstu dögum) En já bókin á sem sagt að innihalda upplýsingar um hverja og eina okkar, myndir af okkur á alls kyns viðburðum pjattpíkanna, alls kyns sögur og gullkorn, ef til vill fallega texta um vináttu og marg margt margt fleira. Þið megið endilega koma með hugmyndir til að hafa þetta sem flottast. Svo verður að sjálfsögðu reglulega bætt inn í bókina!!! En endielga svarið þessum lista sem fyrst og sendið mér myndir og eitthvað sniðugt sem ykkur dettur í hug á netfangið mitt (huldabjorg87@hotmail.com)
ATH bókin á að vera til á reunioninu í mars!!! svo það þarf að fara að drífa í þessu stelpur!!!

En snúum okkur þá aðeins að lífinu og tilverunni...."allir" sem lesa þetta blogg hafa sjálfsagt séð á síðustu færslu hvað við dömurnar erum að aðhafast við í augnablikinu. Þó má aðeins bæta við....já og kannski brara rifja aðeins upp....
- Hrefna lagði af stað til Sölden núna í dag og mun vera þar líklega fram í mars að vinna á einhverju skíðahóteli að ég held.
- Snædís er jú eins og flestir vita í Frakklandi að heilla held ég flest alla strákana þar upp úr skónum með ljósa hárinu og bláu augunum;0) inn á milli sem hún hneykslast á jólatískuslysi frakkanna og talsverðri fáfræði þeirra á Íslandi
- Hildur er að missa geðheilsuna í englandi - hefur ákveðið að koma heim um jólin og gerast 10 barna heimavinnandi húsmóðir....ehhh eða ekki!!!
- Íris er að fíla það í botn að vinna á Iðavöllum
- Eva Dís....biddu já hver er það aftur...jú þessi sem er alltaf svo voða busy - skóli, vinna, kærastinn!! úff akkuru eru ekki fleiri klukkutímar í sólarhingnum hjá svona uppteknu fólki!!!
- já og ég er á fullu í jólaundirbúningi og að sjálfsögðu dúllast með litla gullmolann minn

en verð að segja að mér finnst nú pínu fyndið að ég skuli vera í meira sambandi við þær manneskjur sem eru staddar í öðru landi heldur en þær sem eru actually í næsta hverfi við mig hehee. Koma svo stelpur ég bara trúi ekki að þið getið ekki gefið ykkur smá tíma í að kíkja í heimsón eða gera eitthvað skemmtilegt!!! ég legg til að við förum í bíó, út að bora, höfum videokvöld...eða já bara förum aftur á kaffihús. Mig langar allavega að fara að gera eitthvað!!!!

En jæja hef svo sem ekki meira að segja...ætlaði bara að láta ykkur vita af mynningabókinni sem er við það að fara í vinnslu;0)

Adios - Hulda

09. desember 2007 klukkan 18:31
...
4 athugasemdir
20nóvember

Góđir tímar...

Já stúlkur mér lýst ekki á hvernig er komið fyrir þessri síðu hérna....
ákvað að setja inn nokkrar myndir svona frá liðnum árum....ýmislegt er það sem við höfum brallað saman og ég á nú bara myndir af svona 1/1000 af því :)
En já enjoy....rifjið upp gamla og góða tíma og vonandi kemur yfir ykkur löngunin til að blogga hérna inn á ;)


2003



Útilega í Vaglaskógi eftir 10. bekk...sumarið 2003 ;)



Snædís, Hulda og Hrefna á leið á árshátíð MA 2003


Svo virðist ég ekki eiga neinar myndir á stafrænu formi fyrr en ári seinna....svona var maður tæknivæddur...

2004



Snædís og Hulda á árshátíð MA 2004



Hildur, Snædís, Hulda og Ragna...sama árshátíð...



Hildur, Ragna og Eva Dís...enn árshátíð... ;)

2005


Dansi dansi...á leið á djammið.. 18. maí 2005...nágrannar Evu Dísar munu aldrei jafna sig á þessu kvöldi held ég heheheh


Komnar í útilegu í Mývó...sumar 2005 fámennt en góðmennt í þessa útilegu ;)


Þáttakendur þetta árið: Hulda Eva Dís og Snædís...kjööött ahahah


Ahaha bara fyndin mynd...þarna var eitthvað liðið á kvöldið minnir mig ;)


Komnar til Benidorm, september 2005...og strax farið að versla...


....og djamma auðvitað..Hildur og Hulda ready á djammið



Og þær sem fóru til Benidorm: Snædís, Ragna, Hildur og Hulda ...
og Eva dís er draugur á þessari mynd því hún átti að vera með en á
kvað frekar að vera heima í gifsi ...Riight :/


Og enn er komin árshátið...stelpur við gerum ekkert annað en mæta á árshátíðir ;)


Fínar og flottar á árshátíð 2005


2006

Slakað á í bústað í Vaglaskógi eftir prófin....janúar 2006


Alvöru vetur þarna.....hehehe já enn í bústaðnum.. ;)


Á leið á djammið...mars 2006 og í svaka stuði


Eva Dís sérstaklega var alveg himinsæl ahahha


Sætar skvísur á leið í Sjallann... :*


Komar saman til Rvk... apríl 2006


Hildur og Hulda eitthvað að flippa eftir verslunarleiðangur.... enn í Rvk



Borða saman á afmæli Evu Dísar 11. apríl 2006


Hildur, Hulda og Hrefna saddar eftir ljúffenga afmælismáltíð


Ágúst 2006...fórum saman út að borða á La vita é bella....


Hulda og Hildur á la vita...


Komnar í Vaglaskóginn góða í útilegu....
og Hildur að brillera í að tjalda ;)  ágúst 2006



Og Eva Dis og Hildur tjölduðu á meðan Snædís gerði ekki neitt  :-O aha



Hrefna var í miklu stuði þegar var spilað bullshitt um kvöldið ....


En henni fannst grænt Mickey Finn's ekki gott ahahah


Og að sjálfsögðu var bara tekinn með "hæfilega" mikill farangur eins
og alltaf þegar við píur förum eitthvað saman .... !!!


Jæja komnar til Búlgaríu í útskriftarferði í sept 2006, tekið 30. ágúst....
Afmæli Snædísar ;)


Svaka gellur á leiðinni út....Hrefna var enn að klæða
sig þegar þessi mynd var tekin ehehhe


Snædís, Eva Dís og Hulda í Istanbúl, með útsýni yfir Asíuhluta borgarinnar


Hildur og Eva Dís í Búlgaríu :)


Jæja enn og aftur komin árshátíð og nú sú síðasta fyrir
okkur flestar..... ;) Hildur og Hrefna á 1. des


Eva Dis (ekki á sinni síðustu árshátíð) Hildur og Snædís


Hulda sæta á árshátíð 1. des 2006


Hulda og Arna Karen á áramótunum 2006 (gæti reyndar trúað að
þarna sé komið árið 2007) 

  
Kampavín og kórónur á áramótunum...góð áramót stelpur...góð ár
amót ;)

2007


Mars 2007, 3 á leið á sálarball :)


Tíhí ljóskur ...... :*


Dimmitering í mai 2007, 2 sjóliðar, Kill Bill konan og ofurhetja ;)


17.júní 2007: orðnar stúdent =D og Arna Karen farin að taka meira pláss á myndum ;)


Að kvöldi 17.júní, Eva Dís litla ekki stúdent og Hildur stóra stúdent ;)


Hrefna með hvíta kollinn :D


Snædís og Hulda í miðbænum á miðnætti....ooo svo skemmtilegur dagur :D


Ágúst 2007 Komnar í enn eina útilegu, í Ásbyrgi í þetta skipti


Jei Íris var með í för =D


Hildur og Hulda í ullarpeysufíling...Arna Karen líka með á myndinni :P


Eva Dís, Írs og Snædís....ógó gaman saman :D


Hrefna og Hulda hrikalega sætar :*


Og allar skvísurnar saman komnar :*

Jæja og núna erum við allar næstum í sitthvoru lagi....þó að það séu reyndar 4 heima á Akureyri og við Hildur bara 2 í útlöndum heheh allaveg ég er í burtu frá ykkur öllum...og allir eru voða uppteknir við sitt núna held ég bara...
En mikið hlakka ég til í mars þegar ég kem heim og við getum gert eitthvað skemmtilegt allar saman...pant bústað ;D

Set inn svona nokkrar myndir  allir í sitthvoru lagi eiginlega...sorry stelpur stal þessum af síðunum ykkar :*


Snædís og Eva Dís saman í París í 4 daga....
Eva Dís að heimsækja mig í Frakklandið :*



Hildur er í Englandinu og þarna er hún með Albert Einstein...
hver vissi að hann væri enn á lífi hehehe, og svona líka
svipur með þeim ;)


Huldu fjölskylda á skírn litlu Snúllu ... svoo sæt :*


Íris sæta á Akureyrinni og stefnir í að verða helvíti fær á myndavélinni ;)
tíhí var að skoða myndarnar á síðunni þinni


Og Hrefna komin aftur heim á Akureyrina eftir Svíþjóðarferð..



Jæja stúlkur ég hef lokið mér af...ef ég fæ engin viðbrögð við þessu meistarabloggi mínu þá er þessi síða officially dauð... svo nú er bara að biða og vona :)

Lov you sætu mínar...
Snædís Anna


20. nóvember 2007 klukkan 15:36
...
8 athugasemdir
19október

Jćja stúlkur

þessi síða okkar er greinilega alveg að deyja. Enda veit ég ekki hvað við ættum að skrifa að við höfum gert saman.
Já og um síðustu helgi fórum við EKKI saman á djammið og horfðum EKKI saman á spólu eða borðuðum nammi. Þessi vandræði að gera eitthvað saman gætu orsakast af því að við erum ekki allar í sama landinu...hvað segiði...haldiði að það sé ástæðan. Ég er ekki sannfærð sko.

Anyway var að blogga á mitt blogg með fréttum af mer svo ég nenni ekki að setja þær hingað inn líka ;)
Er bara að syna smá lit og setja blogg hérna inná....Skoðunarkönnunin er t.d. orðin frekar úrelt, held að það sé ekki spurning lengur hvort Hulda mun eignast stelpu eða strák og svo má nú líka setja nafnið á dömunni á linkinn hennar í staðinn fyrir Bumbubúi eða ;)

Elsku Hulda min innilega til hamingju með nafnið á Snúllu....Arna Karen
Já Hrefna til hamingu með afmælið og að vera komin heim á klakann....
Eva Dís.... ekki til hamingju með neitt sorry...þú átt ekki barn né afmæli núna heheheh nei sæta. Láttu þér batna eftir áreksturinn, muna bara, þetta var ekki alvarlegt slys og það er fyrir öllu, samhryggist samt með Plútó, hans verður sárt saknað Gráta
Hildur mín, vonandi ertu að hafa það gott þarna í Englandinu, vona svo iiiiinnnniiiilega að þú getir komið til Parísar í nóv. það yrði algjört ÆÐI .
Íris mín, verð að fara að heyra í þér á msn eða eitthvað, hef ekkert heyrt frá þér of lengi. Veit allavega að myndirnar þínar á síðunni þinni eru geeggjaðar og veit að þið evadis eruð að fara á ljósmyndanámskeið...Have fun lov ya :)

Já þar hafið þið það sætu mínar. smá tilraunir, þarf ekki að vera langt....og ja svo bara verð ég að segja, mæli með því að fara í gegnum gamla bloggið okkar frá byrjun og lesa....Það er alveg mögnuð skemmtun

Sakna ykkur svoooo
'Luv Snædís

Já sætu mínar þar hafið þið það.

Ein svona týpísk af mér í lokin bara til að fá ykkur til að hlægja ;)
19. október 2007 klukkan 14:20
...
9 athugasemdir
14október

Hrefna tvítug!


Til hamingju með afmælið krútt;) !!!!
14. október 2007 klukkan 17:35
Eva Dís Guđmundsdóttir
3 athugasemdir
27september

sakn!!

Ohhh stelpur ég sakna ykkar alveg svakalega mikið!!!
- alveg glatað að hafa ekki ykkur allar hérna
GrátaGrátaGráta

luv'yaKoss

kv Huldan

27. september 2007 klukkan 20:17
...
5 athugasemdir
17september

Hildur tvítug

Til hamingju með afmælið elsku Hildur okkar!!!
17. september 2007 klukkan 18:01
...
3 athugasemdir
11september

ný síđa

jæja ég er komin með nýja síðu...endilega kíkkið

http://hulduz.bloggar.is/
11. september 2007 klukkan 19:20
...
1 athugasemd
08september

Jćja jćja..

Þá er maður bara flogin burt frá Íslandinu og heimkoma ekki plönuð fyrr en um miðjan mars 2008..
í augnablikinu er ég stödd í London en fer þaðan í nótt og til Frakklands.
Nenni nú ekki að skrifa mikið hérna inná, setti færslu á mitt eigið blogg í dag svo að helstu fréttir eru þar.

www.snaedisanna.blog.is

Ætla að reyna að vera dugleg að blogga þarna inná í vetur.
En jamm, semsagt fullt að gerast hjá okkur píunum...Hulda komin með litla stelpu  (sem er btw búin að lofa mér að stækka ekkert fyrr en í mars þegar ég kem heim ;), Hildur farin til Englands og klaufinn fattaði vist ekki að það eru öðruvísi innstungur í Bretlandi þannig að maður hefur nú ekki heyrt mikið af henni þar sem bæði síminn og tölvan hennar voru batterílaus. Annars ætlar hún að blogga á www.123.is/hildursif

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra, endilega fylgist með ævintýrum okkar vinkvennanna.
Ætla að fara að sofa svo ég geti vaknað klukkan 3 í nótt til að fara á flugvöllinn...
Bæjó
kv. Snædís
08. september 2007 klukkan 19:58
...
Engin athugasemd
30ágúst

Snćdís tvítug!!!

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Snædís
Hún á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið elsku Snædís mínKoss Vonandu áttu góðan dagHlæjandi

kv Hulda og litla prinsessan!!!

30. ágúst 2007 klukkan 13:22
...
3 athugasemdir

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hver verđur nćsta mamma í hópnum :-O

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...